Þula Katrín Helgu- og Þórðardóttir
Veik heima. Viðfangsefni dagsins: Kubbar, púsl, legó og Gosi (eitthvað fleira kannski sem ekki náðist mynd af). Svo þarf að þvo hendur og fés og svona fyrir háttinn
(Blogger er með stæla í dag og því er ekki hægt að setja texta við hverja mynd).
Kubbakúnstir
Kubbaborg og krummaskítsritúal
Namm - hamborgari...
Mánudagur hjá djásninu (29-01-07)
Perlun krefst vissulega einbeitingar
Óvæntur pakki...
... sem reyndist innihalda heldur ófrýnilega kónguló
Nokkur lauflétt dansspor...
Efnisorð: Myndsmiður: Sveinlaug
MYNDIR DAGSINS
Svöng, dösuð og dálítið úrill eftir sundið - í góðum höndum í Hlíðartúni
Þula Katrín sem móðir og Þöll sem barn
Fyrsti dagblundurinn (án hita) í heilt ár - annað kom bara ekki til greina...
Loksins ró... eftir erfiðan dag (27.01.07)
Playmo-læknir hugar að veiku barni (26-01-07)
Þula Katrín hefur fram til þessu setið ein að þessari vefsíðu, sem og allri heimsins athygli. En engin sæla varir að eylífu...
... svona byrjaði þetta (29.11. 2006):
Og svona leit þetta út við 12 vikur (23.01. 2007):
Áhugasömum um ómskoðanir er sérstaklega bent á dökkan díl á miðjum búk á neðstu mynd - það er fullur magi af legvatni (namm...) og svo dekkri díl hægra megin ögn neðar, það er full blaðra af legvatni, tilbúið til pissunar...
19. janúar 2007 verður minnst sem dagsins sem Þula Katrín fékk fyrstu gleraugun sín.
Fyrst starði hún agndofa í kringum sig og stundi svo ,,ég sé meira... fallegt". Svo fór hún að snúa sér í hringi... alveg í sínum eigin heimi (áhugasömum stendur til boða að sjá upplifunina á vídeói...)Að uppgötva og uppgötva... 19. janúar
Helgina 5. - 7. janúar var Þula Katrín með pabba, mömmu, afa, ömmu, Sveinlaugu og Guðjóni í Vestmannaeyjum. Myndir skoðist að neðan og upp... Búin á því í bílnum á leiðinni heim, 7. janúar
Pæjan nýtur stjörnuljóss í Þrettándagöngunni með pabba og ömmu
Tröllaskoðun með afa
Í pottinum með ömmu (og pabba og Sveinlaugu), 6. janúar
Í pottinum með mömmu á föstudagskvöldið, 5. janúar