Þula Katrín Helgu- og Þórðardóttir
Þessar tvær óska gleðilegra jóla...
Söguhetjan varð stór systir á þeim herrans degi 7. ágúst 2007. Hér gefur á að líta myndir af fyrsta fundi systranna, miðvikudaginn 8. ágúst.
... mæðgurnar allar þrjár:
Fyrsta heimsóknin til tannlæknis var farin miðvikudaginn 18. júlí og söguhetjan stóð sig með prýði eins og meðfylgjandi myndir sýna:
Stolt með afa að glæsilegri frammistöðu lokinni:
Þula Katrín byrjaði leikskólafríið sitt á því að fara í sumarbústað í Miðhúsaskógi.
Þegar von var á afa og ömmu úr Mosó í heimsókn þurfti daman að leggja sitt af mörkum við kökubakstur:
Smá tími gafst þó fyrir sólbað með magastóru mömmunni
Og göngutúr með pápa gamla
Hér eru langmæðgurnar að rýna saman á flugdreka sem sveimaði yfir trjátoppunum
Daginn eftir, mánudaginn 9. júlí, rakst frökenin á þessa æsispennandi vinnuvél og mátaði sig aðeins í hana...
Fékk líka að taka myndir á flottu myndavélina hennar föðursystur sinnar
Hér eru svo tvær myndir úr heita pottinum sem var mikið notaður. Þula Katrín tók bláu höndina algerlega í sína þjónustu. Afi Siggi Hreiðar tók myndirnar.
Stytturnar í grasagarðinum bjóða upp á ýmsa möguleika.
Frænkurnar, laugardaginn 23. júní 2007.
Potturinn á Langholtsvegi er líka endalaus uppspretta skemmtileika
Söguhetjan lenti í þeim hremmingum að fara úr olnbogalið (hægri) í lok ættarmóts Hjaltested-klansins. Brunað var með sjúklinginn til borgarinnar og beint á Slysó. Hér gefur á að líta einkar dramatískt augnablik, á leiðinni í röntgen (áður en ljóst var að meinið var bara í liðnum).
Hvað er meira viðeigandi í slagviðrinu en að skella sér á vorhátíð leikskólans?